Meira en vörukynning
Þú færð meira en nokkrar klukkustundir í verslun.
Áður en kynning fer fram getum við skilgreint með fyrirtækinu hvað það vill fá út úr verkefninu.
Það gerir okkur kleift að beina athyglinni að því sem skiptir raunverulega máli – hvort sem það er kaupáhugi, viðbrögð við verði, bragði, umbúðum, vörunni sjálfri eða ákveðnum skilaboðum.
- 01
Markmið
Við byrjum á að skilgreina hvað fyrirtækið vill fá út úr kynningunni og hvaða spurningum við viljum reyna að svara.
- 02
Framkvæmd
Kynningarfulltrúinn fylgist með viðbrögðum, skráir viðeigandi upplýsingar og safnar endurgjöf meðan á kynningunni stendur.
- 03
Niðurstöður
Eftir kynninguna fær fyrirtækið skýra samantekt með helstu niðurstöðum, athugasemdum og mögulegum næstu skrefum.
Hvað vilt þú fá út úr kynningunni?
Við mótum kynninguna út frá markmiðinu – ekki öfugt. Dæmi um spurningar sem við skilgreinum með fyrirtækinu:
- Viljum við fyrst og fremst auka sölu?
- Viljum við kynna nýja vöru?
- Viljum við fá fólk til að prófa vöruna?
- Viljum við skilja hvernig neytendur bregðast við verðinu?
- Viljum við fá viðbrögð við bragði, lykt, umbúðum eða notkun?
- Er ákveðinn markhópur mikilvægur?
- Er sérstakur eiginleiki vörunnar sem við viljum leggja áherslu á?
- Hvaða upplýsingar myndu nýtast fyrirtækinu eftir kynninguna?
Dæmi um skýrslu
Sýnidæmi – uppdiktaðar tölurSamtöl
142
Sýnishorn
318
Kynningartími
4 klst.
Viðbrögð neytenda
Bragð, umbúðir og verð
Hlutfall jákvæðra svara
Sala
Birt eingöngu þegar staðfestar sölutölur liggja fyrir frá verslun eða fyrirtæki.
Algengar spurningar
- „Hvað kostar varan?"
- „Hvar fæst hún annars staðar?"
- „Er hún án viðbætts sykurs?"
Helstu kaupahindranir
- — Verð miðað við sambærilegar vörur
- — Óvissa um notkun
- — Umbúðir þóttu litlar
Athugasemdir kynningarfulltrúa
Mestur áhugi var síðdegis. Margir spurðu hvort varan hentaði börnum.
Tillögur Market Mix fyrir næstu kynningu
- — Leggja meiri áherslu á notkunarmöguleika vörunnar.
- — Hafa verðsamanburð tilbúinn fyrir kynningarfulltrúa.
- — Skipuleggja kynningar síðdegis og um helgar.
Hvaða upplýsingar eru mældar fer eftir markmiðum hvers verkefnis.
Ertu með vöru sem fólk þarf að upplifa?
Segðu okkur frá verkefninu og við finnum réttu leiðina til að koma vörumerkinu þínu fyrir framan fólkið sem skiptir máli.
Fá tilboð